|
|
12.08.2007 02:06:51 / LaTour
Jæja gott fólk núna hefur allavegana liðið vika frá síðasta
bloggi hjá okkur og einhvernveginn átti ég von á að einhver annar
væri búinn að segja eitthvað en greinilega ekki svo ég verð bara að
segja eitthvað sjálfur.
Það nýasta í fréttum er að við erum að skoða ferð til
Skotlands í smá whiskey smökkunarferð, Og fyrir þá sem þekkja
eitthvað til þeirra drykkjar vita að þetta á eftir að verða
GEIÐVEIK ferð eins og allar ferðirnar okkar eru Við kunnum of
vel að skemmta okkur saman jafnvel þrátt fyrir léttar
hryðjuverkaárásir eins og hann okkar eymar kynntist í síðustu ferð
til belgíu hehehe.
Og fyrst ég var að segja frá belgíu ferðinni þá verð ég að
minnast á að hún var hreinræktuð snilld í alla staði.
Okkur tókst ekki áætlunarverkið okkar að smakka yfir 2000
tegundir af bjór en við náðum að komast annsi nálægt því, En eins
og vonadi þið flest vitið er mjög fátt sem kemst nálægt belgískum
bjórum í gæðum og bragði nammi namm við elskum þessa bjóra.
Svona að lokum þá vona ég að einhver annar komi með næsta blogg
ef ekki þá mun ég koma með næsta blogg sjálfur.
Latour OUT
»
06.08.2007 00:47:02 / LaTour
Góðan og blessaðan daginn mínir kæru aðdáðendur
Mér og fleiri úr ölkunum langaði bara segja HÆ
Við erum en lifandi þó að ekkert að viti hafi komið út úr
okkur frá því árið 2006.
Við erum búnir að vera að safna upplýsingum með því að drekka
FLOTT vín og því miður höfum við bara alltof oft verið of þunnir
til að blogga síðasta árið.
Fyrir þá sem þekkja okkur munu skilja okkur sérstaklega Steina
því hann þolir áfengið svo ílla. Sorry Steini minn en sannleikurinn
er bara of fyndinn.
Meira hef ég valla að segja í bili svo takk fyrir mig og
sjáumst næsta ár.
Kveðja
Latour (betur þekktur sem JÓI)
»
15.06.2006 13:10:58 / Yquem
Kæru aðdáendur 
Nú var það gott, en fórum við nokkur út að borða á Hereford
Steakhouse og fengum okkur gott að borða, um var að ræða 3 rétta
máltið sem stóð af Sníglum í forétt, Lamba og nauta fille í
aðalrétt og náttúrulega Créme Brule í eftirétt(vona að þetta sé
rétt skrifað).
Nú með kræsingunum fengum við okkur náttúrlega nokkur góð vín
eins og gefur að skilja, en þau voru eftirfarandi:
Með sniglunum: Francois d'Allaines Saint-Aubin En Remilly
2003(Bourgogne) sem er Premier Cru og Paul Blanck Schlossberg
Riesling 2002(Alsace). Nú voru bæði þessi vín æðisleg og komst
undirritaður að nokkru skemmtilega við að smakka þessi vín en með
Sniglunum fannst með Bourgogneinn fara betur með í fyrstu en þegar
ég var búinn að setja smá sítrónusafa yfir þá fannst mér Alsaceinn
eiga betur við, en hann Eymar var akkúrat ósammála mér þar sem
sínir bara að það sé einsgott að vínúrvalið í vínbúðunum er
einsgott eins og það er.
Með Lamba/Nautafille: Nú það voru sko vín sem voru heldur betur
af hærri skalanum en það voru Les Tourelles de Longueville
2002(Pauillac/Bordeaux) og Castello di Querceto Il Picchio Riserva
2001(Toskana). Hallelúja amen og allt það en voru heldur betur
skiptar skoðanir þar á bænum en í stuttu máli ownaði Bordeauxinn
Toskanann í Lambinu en vann Toskanainn vann heldur betur á með
Nautinu(samkvæmt því sem Palli sagði) annars kom það þannig út
að Bordeauxinn var þessi elegant típa sem er í raun fjölhæfari með
mat heldur en Toskanainn sem var þessi mikli bolti sem þurfti líka
tíma til að hita aðeins upp(umhelling hefði gert það)
Nú þá er það komið að rúsínunni í pilsuendanum en það var Créme
Brule og með því fengum við hvorki meira né minna en Chateau
Guiraud 1999(Sauternes) . Enn á ný voru skiptar skoðanir þar
en þar fannst Eymari sýran í Sauternesinum svoldið pirrandi á meðan
Steini sagði hvílík snilld, en voru flestir sammála um að
Sauternesinn var bestur einn og sér.
Jæja vona að ykkur kæru aðdáendum okkar hafi þótt þetta skemmtilegt
og vil ég þakka Hereford Steakhouse fyrir æðislegt kvöld og þá
sérstaklega honum Val fyrir skipulagninguna.
Þangað til næst
Yquem out
»
13.05.2006 22:33:50 / LaTour
Jæja gott fólk ég veit að þið voruð farinn að halda að við værum
alveg hættir að segja ykkur frá ævintýrum okkar strákana en NEI hér
er ég mættur til að segja ykkur það allra nýasta ERUÐ ÞIÐ
TILBÚINN
það er voða lítið að segja frá þessa dagana en samt hlýt ég að
geta sagt eitthvað svo hér kemur það
Eins og allir vita erum við strákarnir þeir allra færustu í
vínfræðum hér á landinu (fyrir utan fullt af fólki) en það sem þið
vitið ekki er að við erum líka mjög svo góðir í fótbolta enda er
hann æfður alla sunnudaga í tynkunni og værum við ekki svo
uppteknir við að smakka öll þessi vín og já þau eru þó
nokkuð mörg í hverji viku þá værum við flestir að reyna fyrir okkur
í Atvinnumennskunni í fótbolta í löndum eins og Armeníu og
Kashinkstan þar sem við ættum sjéns á að vera meira en bara þunnir
alkar að sparka í bolta alla sunnudaga
núna er kominn tími til að kveðja þar sem mér dettur ekkert
meira í hug til að segja svo núna verð ég að fara í afmæli hjá
henni ÖNNU okkar (ein af grúppíum okkar ) sorry Anna ég bara vað að
segja eitthvað um þig .)
Bless bless
P.S hvað segið þið um að koma að dansa mér leiðist
»
19.04.2006 01:05:52 / LaTour
Jæja gott fólk hér er ég kominn til að segja ykkur frá því að
páskarnir er liðnir bara svona fyrir þá sem misstu sig aðeins í
drykkjunni íöllu þessu fríi sem var í vikunni 
Það er bara lítið sem ekkert að frétta af okkur strákunum nema
hvað að hann Steinn okkar er að koma heim frá væntanlega mjög
skemmtilegri ferð frá Flórída þar sem við gerum ráð fyrir að hann
hafi gert okkur stolta og smakkað heilan ósköp af flottum vínum og
komi vonandi með eiithvað handa okkur að smakka (PLEASE)
En annars vorum við eitthvað að reyna að plana Hvítvíns smakk á
næstum dögum þar sem við ætlum að smakka einhver flott og vonandi
góð vín
Meðan ég man þá er ég að fara til Köben fljótlega til að kynnast
danskri bjór menningu og kanski versla eitthvað lítið bara svona
til að fylla upp í fatarskápinn og JÚ ég ætla líka að reyna að
finna einhver dýr og flott vín í safnið hjá mér
En nú er ég farinn
SÍJA
»
04.04.2006 17:59:29 / hermitage
Jæja stóra stundin er runnin upp... Hobbitinn sjálfur er farinn
til útlanda og þá er loksins friður fyrir honum 
Við strákarnir mínus Jói skelltum okkur til Dusseldorf um daginn
á sýninguna Prowein þar sem er saman kominn heill her af
vínframeiðendum, innflytjendum og m.fl. Þar var smakkað heil ósköp
af víni frá mismunandi löndum en þó helst Spáni og Frakklandi. Þar
sem að engin þessara tegunda er í sölu hérna heima og plús það að
við vorum nú ekekrt að skrifa nótur þá munum við ekkert setja
umfjöllun um þau vín.
Hins vegar smökkuðum við eitt hnossgætisromm sem var að byrja í
sölu um daginn. Þetta heitir Angostura 1919 og kostar það 4.730 kr.
Eins og ég sagði var þetta algjört hnossgæti sem er ætlað til að
drekka dry, og ég skil það sem Maggi sagði við mig "... ef þú setur
klaka í þetta þá drep ég þig...".
En svo er það pælingin að hafa smakk núna í vikunni eða næstu og
það væri gaman að þeir sem eru áhugasamir pósti um það hér að neðan
og komi þá lika með uppástungur um smakk...
Og svo að lokum eins og Shaggy sagði " Mista lova
lova...mmm"
»
01.04.2006 17:15:18 / Yquem
Jæja nú er maður í smá delma en samt ekki en maður verður að spirja
fyrirtækið sem maður vinnur hjá af hverju Árshátið þess sé á sama
tíma og leikur Real Madrid og Barcelona sem er enn af þeim stærstu
þar í landi  en jæja. Annars er það að frétta af smakki að ég
kíkti til hans Gunna á Vínbarnum til að smakka nokkur dýrindis vín.
Það fyrra var Inkara Cabernet Sauvignon og það er bara nammi,
fyndið en það á nokkurn hátt minnti mig á Ástrala vegna ávaxtarins,
svo var hann líka með svo ljúfa sveit í sér. Seinna vínið var sko
ekki af verri endanum en það var Tignanello frá 2001 og verð ég að
segja JUMM JUMM en þarna ertu með þroskað vín úr Sangiovese,
Cabernet Sauvignon og einhverri 3 þrúu sem ég man ekki hver var í
augnablikinu. Það var tannín ríkt en það hafði aðeins sjatnað þar
sem hún hafði verið opnuð fyrr um daginn, síðan var þetta típpíska
súkkulaði sem er alltaf svo gott, í einu orði Frábært!! Síðan lét
Gunni mig hafa glass með rauðuvíni í sem ég vissi ekki hvað var og
lýsti það sér að liturinn var svona ljós rúbinrauður (reyndar var
lýsingin ekki góð) og lýsti það sér þannig í lygt að það var svona
"heitt" og þroskað með bökuðum ávöxtum og skaut kallin á Cote de
Rhone og var svo sem ekki svo langt frá þar sem það var frá
Roussillon. Þangað til næst Yquem out
»
28.03.2006 22:36:18 / LaTour
Jæja gott fólk núna styttist í að 2 af okkur srákunum koma heim
úr en annari vínferð frá Þýskalandi þar sem ég vona að mikið af
frábærum vínum hafi væntanlega verið smökkuð,
Og ég vona að þeir komi nú með eitthvað sniðugt með sér heim svo
við sem sátum eftir hér á klakanum getum aukið okkar þekkingu og
smakkað eitthvað sem við höfum ekki prófað áður eins og þið vitið
er alltaf gaman að smakka ný vín og við mælum eindregið með
því að fólk (og þá meina ég þig) prófið að leggja traust ykkar
á okkur vínráðgjafana í Kringlunni
og látið okkur mæla með einhverju víni sem þið hafið ekki prófað
áður.
Núna ætla ég að fara að smakka á d'Artenberg Laughing
Magpie vín sem hefur verið að fá mjög góða dóma upp á
síðkastið,Þetta er mjög spes vín þar sem þetta er blanda af
Shiraz og Viogner sem er hvítvínsþrúga,Þessa
blöndu sér maður ekki á hverjum degi nema helst í ákveðnum
vínum frá Frakklandi.Ég hef aldrei verið of hrifinn af Áströlskum
vínum þó er nokkrar undartekningar á þessu eins og Peter
Lehman Futures og Wolf Blass President
seletion Cabernet Sauvignion,Svo núna reynir á
d'Artenberg að standa upp í þessum vínum þó
svo að ég viti að þetta eru mjög ólík vín.
Jæja get ekki sagt meira þar sem vínið er komið í glasið hjá mér
svo við heyrumst seinna.
Latour OUT
»
24.03.2006 02:14:07 / LaTour
Jæja kæru landsmenn eða allir þeir sem nenna að lesa þessu síðu
okkar strákana núna var ég að koma heim úr stóru bjórsmakki sem við
stóðum fyrir þar var bjór allt frá flottustu bjórlöndum í heimi til
ekki svo góðum bjórlöndum smökkkuð 
Nammi namm verð ég bara að segja,þetta var eins og allt sem við
plönum snilldar kvöld eins og okkur er einum lagið.
Við fengum til okkar 3 gestasmakkara og í þetta skipti voru
Egill,Máni og ekki síðst
Maggi frá Vínbúðinni Heiðrúnu fengnir til liðs við
okkur í að smakka alla þessa 23 bjórar sem við vorum með á
borðstólnum.
Bjórinn var samt eins og á alltaf í hlut með bjór
misgóður þó var enginn af þessum 23 bjórum vondur (þó svo að
sumir hafi verið FREKAR SPES) og ég meina frekar spes en
á einhver furðulegan hátt þá runnu allir bjórarnir ljúft niður nema
hvað sumir áttu í smá erfiðleikum með suma af þessum bjórum og
þá nefni ég engin nöfn en við skulum bara segja að þeir vinna
í Vínbúðinni í kringlunni.
En allar lýsingar á þessum bjórum munu koma sem fyrst á síðuna
hjá okkur ég mundi gera það núna en man hreinlega ekki öll þessi
nöfn og kann bara ekki að bera sum þeirra fram ekki það að ég sé
eitthvað SLOW en þá voru sum af þessum nöfnum í skrítnari
kantinum.og á útlensku
Takk kærlega fyrir að nenna að lesa þetta og við heyrumst
seinna
»
23.03.2006 01:10:46 / hermitage
Bara rétt að bæta við að það verður bjórsmakk hjá okkur á
morgun, þar sem að við erum komnir með ansi myndarlegt bjórsafn.
Þar verður smakkaðir einhverjir 18 bjórar og þar má nefna 6
tegundir af leffe, nokkrir belgískir bjórar, Adelscott viskibjórinn
"góði", bjór frá kúbu, La Guillotine og margt fleira.
Það verður nýr maður viðstaddur á þessari bjórhátíð sem að
gengur undir nafninu Magnús en hann er oftast kallaður Maggi.
Annars verðum við strákarnir viðstaddir auk Mána og Egils. Og af
sjáfsögðu verður Krónprins Noregs á staðnum!!!
»
21.03.2006 23:48:23 / Opus1
Já, vegna mikillar anna/leti, þá hefur alltof litið gerst hjá
okkur í síðunni, en við vorum að fá enn einn snillinginn til liðs
við okkur...
Hann Siggi vínnörd með meiru hefur ákveðið eftir mikla umhugsun
að byrja að skrifa fyrir okkur...veivei
Vonandi verður það ein stór vítamínssprauta í rassgatið á okkur
strákana sem höfum hingað til ekki verið nógu duglegir, einnig bið
ég ykkur lesendu kæru að vera duglegri að commenta á okkur !.
Matarboðið/vínsmakkið hjá Eymari sem var fyrir stuttu heppnaðist
hörkuvel, meira verður fjallað um það bráðum.
Við bjóðum því hann Sigga hjartanlega velkominn í góðan hóp og
skellum því upp spurningu dagsins sem er hvaða vín er
uppáhaldsvínið hans Sigga ??
»
10.03.2006 23:38:33 / hermitage
Ahem! Já svona er það nú. Allir að velta því fyrir sér hvort að
við séum hættir að blogga, hvort að allt sé búið hjá okkur
strákunum o.s.fr. NEI, við munum aldrei hætta að blogga og það er
alltaf eitthvað í gangi hjá okkur strákunum Hins vegar er ég
(Eymar api) búinn að vera puttabrotinn á öllum, Steini Hobbiti er
búinn að vera að raka sig og Jói... tja, er það ekki bara nóg .
Þetta er ástæðan fyrir að við höfum ekkert skrifað síðan síðast og
svo höfum við ekki haft undan að smakka, þar sem menn eru ólmir í
að láta okkur smakka og dæma vínin þeirra. Strákarnir eru nú einu
sinni eftirsóttir 
En það sem við smökkuðum síðast var tvö vín frá Chateauneuf du
Pape - E.Guigal og Les Cailloux - einn Zinfandel frá Californiu og
svo kom leynivín. Það var ekkert annað en Rosso Del Conte frá Tasca
D´Almerita. Allt saman þrusugóð vín og getið þið lesið um þau í
Rauðvínshorninu.
En á morgun er stór dagur, svo stór að Steini rakaði á sér
tærnar... believe it or not! Það sem er að gerast er matarboð hjá
mér þar sem verður saman kominn góður hópur af vínnördum (eins og
Sævar kallar það ) og verður smakkað ekki færri en 10 vín með
tapasréttunum sem verður á boðstólum. Það verður komið inn á síðuna
hjá okkur ekki seinna en á Sunnudagskvöld...HAHAHAHA
En nóg um það ég er farinn að taka upp karftöflur
»
19.02.2006 11:40:34 / hermitage
Foie gras, Akurhæna í rjómalagðri sveppasósu, lambalundir með
villisveppakássu, léttristaður barri með fersku grænmeti, roquefort
ostur (úff) og sólberjasorbet með fylltri pönnuköku. Sauternes, St.
Emilion, Moulis og Graves hvítvín... halelúja. Þið gætuð verið að
velta því fyrir ykkur afhverju ég er að telja upp þennan
dýrindismatseðil og þessi girnilegu vín...
Málið er að ég er búinn að eyða síðustu viku í Frakklandi,
nánari tiltekið Bordeaux - höfuðborg vínsins. Þar er ég búinn að
stunda nám í skóla sem heitir l´Ecole du vin de Bordeaux - eða
Vínskóli Bordeaux. Fyrsta skólaganga mín í frekar langan tíma og
reyndar í fyrsta sinn sem ég hef virkilegan áhuga á því sem ég er
að stúdera og held ég að ég hafi glósað meira á þessum 6 dögum en
ég glósaði samtals alla mína menntaskólagöngu . En þetta var
svakalega flott, lærði allt um Bordeaux sem vínhérað, fórum og
heimsóttum 4 kastala. Mamma, sem fór líka, er að reyna að taka
saman lista yfir öll þau fjölmörgu vín sem við smökkuðum á þessu
námskeiði en þau fara hátt í 70-80 talsins og svo endaði þetta allt
saman á fagi sem kallast Matur og Vín sem var í gær og af
sjálfsögðu var verkleg kennsla og þar kemur að matseðlinum sem
ég taldi upp hérna fyrst. Þvílik veilsa nammi namm. Og af
sjálfsögðu kem ég heim hlaðinn frábærum vínum eins og til dæmis
Chateau Latour 2002 
En jæja þá læt ég þetta gott heita í bili er að hugsa um að ráfa
um París og finna mér e-ð að gera 
Eitt að lokum hverjum finnst að við ættum að gera allt sem við
getum til að Gunni fái hlutverk í Baywatch myndinni, ég meina sjáið
hann bara fyrir ykkur í rauðri sundskýlu með bjánalegan kút í bandi
hlaupandi um ströndina... I DECLARE!!!
»
11.02.2006 02:23:15 / LaTour
Góða kvöldið eða Góðan daginn hvort sem á við þegar þú lest
þetta,Ég er búinn að sakna þess að geta sagt eitthvað
hér svo hérna kemur það
Það sem er helst að frétta af okkur strákunum er það að við
tókum virkilega flott smakk heima hjá honum Steina þar sem við
fengum þó nokkra gestasmakkara þar ber helst að minnast á hann
Palla snilling (takk fyrir komuna) við vorum allt að 10 manns
í þessu smakki þar við tókum fyrir Cabernet
Sauvignon línuna frá Concha Y Toro sem er
framleiðandi frá Chile þá voru smökkuð Sunrise Cab
verð 990kr Casillero del Diablo Cab
verð 1190kr,Marques de Casa Concha Cab
verð 1690kr og Don Melchor Cab
verð 3290kr,ásamt því að tekið var eitt annað vín í
blindsmakki þar sem Gestur og Egill tóku upp á því að sýna snilli
sýna í vínsmökkun,Gestur skaut á landið og Egill kláraði dæmið með
því að nefna framleiðandan, Hrein og bein snilli verð ég að segja
hjá þessum strákum ég leyfi mér að efast um
að Ég,Steini og eymar hefðum getað náð þessu svona leikandi
eins og þeir.
En vínið sem tekið var í blindsmakkinu var J-Lohr
Hilltop Cabernet Sauvignon frá USA verð 2990kr,Og
stóð þetta vín uppúr sem besta vín kvöldsins án efa hreint út sagt
æðislegt vín og við mælum alveg með því að fólk smakki á þessu víni
og ég get ekki hætt án þess að minnast á Marques de Casa
Concha þetta vín gaf dýrari vínunum ekkert eftir og kom
virkilega á óvart hversu mikið vín þetta er.
Á næstu dögum mun birtast hjá okkur nánari lýsing á öllum
vínunum sem smökkuð voru þetta kvöld og fleiri vínum sem við höfum
smakkað síðustu daga.
Ég veit að við höfum ekki verið mjög duglegir að pósta inn á
þessa síða er það aðalega vegna þess að það hefur verið svoltið
mikið að ske hjá okkur síðustu daga og kanski smá leti líka
(aðalega hjá mér) en það fer vonandi að breytast.
Takk fyrir mig
Kveðja Latour
»
13.01.2006 23:39:27 / hermitage
Jæja gott fólk það er orðið langt síðan að eitthavð almennilegt
hefur gerst hjá okkur. En örvæntið ekki, eins og þið sjáið er Jói
sjálfur búinn að skrifa nokkur vel rituð orð og geri aðrir betur!
Ég er akkurat i þessum töluðu orðum að smakka vín frá Kaliforniu,
Robert Mondavi Private Selection Cabernet Sauvignon 2001. Milt vín
sem er alveg þess virði að smakka, góð bygging og ákveðin harmonía
milli krydds og sætu í víninu sem gerir það eftirminnilegt. Reyndar
ekki til í Vínbúðunum en hvað með það, kaupið bara ferð með Iceland
Express og kaupið hana i fríhöfninni á 1.490 kr.
Svo kemur hérna (loksins) umfjöllunin um Pinot Noir smakkið okkar
góða sem átti sér stað í desember. Svo vildi lika svo skemmtilega
til að við komumst á fyrirlestur um koníak þar sem yfirmaður
útflutningsdeildar Otard fræddi okkur og fleiri um þenan
eðaldrykk.Í kjölfarið langar okkur að deila einhverju af þessari
fræðslu og bæta fróðleikshorn okkar með fróðleik um "lífs vatnið"
frá Cognac héraði í Frakklandi, endilega kíkið á það!
Svo verður næsta smakk á fimmtudaginn næstkomandi þar sem ætlunin
er að kanna 5 mismunandi vín frá Concha Y Toro Sunrise Cabernet,
Castillero del Diablo Cabernet, Marques de Casa Concha Cabernet og
Don Melchor. Reynum alla vega að setja það hér inn fyrr en síðasta
smakk
»
Síður: 1 2 3
|
|